Verið velkomin á Tjaldsvæðið Kirkjubæ II, Kirkjubæjarklaustri, í hjarta Suðurlandsins. Tjaldsvæðið okkar býður upp á rólegan og þægilegan samastað til að skoða stórkostlegar náttúruperlur svæðisins.

Tjaldsvæðið Kirkjubæ II
Tjaldsvæðið Kirkjubæ II er stórt og gott pláss fyrir alla. Við bjóðum tjöld, húsbíla og hjólhýsi velkomin. Til að velja besta stæðið gildir reglan: Fyrstur kemur, fyrstur fær.







Smáhýsin
Tjaldsvæðið Kirkjubæ II býður smáhýsi til leigu. Það er notalegt að dvelja á tjaldsvæðinu í hlýju og notalegu smáhýsi. Ef þið viljið gista í smáhýsi á að bóka á Airbnb vefnum og þar sjáið þið verð og hvað er laust.

Frábær staðsetning
Tjaldsvæðið Kirkjubæ II er á Kirkjubæjarklaustri, mitt á milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði. Komdu þér vel fyrir og njóttu þess að fara dagsferðir að helstu náttúruperlum á Suð-Austurlandi.


Fjaðrárgljúfur
Það er tilkomumikið að ganga upp með Fjaðrárgljúfri og horfa ofan í gljúfrið. Stígurinn er rúmlega 2 km langur. Gangan tekur um klukkustund frá bílastæðinu og til baka.

Skaftáreldahraun
Er talið eitt stærsta hraun sem runnið hefur í einu gosi. Eldarnir hófust í júní 1783 og stóðu í átta mánuði. Bílastæði og upplýsingaskilti eru við þjóðveg 1.

Eldfjallaleiðin
Skemmtileg leið til að skoða Suðurland og Reykjanes, með áherslu á eldfjöll og umhverfi þeirra. Átta helstu eldfjöll leiðarinnar vísa veginn og sögð er saga þess hvernig eldsumbrot hafa mótað landið og fólkið.
Umhverfis Kirkjubæjarklaustur
Kirkjubæjarklaustur er frábær staðsetning til að skoða Vatnajökulsþjóðgarð, Kötlu UNESCO jarðvang, Fjaðrárgljúfur, Skaftáreldahraun, Lómagnúp og margt fleira.