Cottages at Kirkjubær Camping Ground

Smáhýsin

Opnunardagur: 1. mars 2025
Lokunardagur: 10. nóvember 2025
Opnunartími móttöku: 16:00 – 22:00
Næturkyrrð: 23:00 – 07:00
Hvað kostar: Verð
Hvar erum við: Staðsetning
Hvað er hægt að gera: Umhverfi

Smáhýsin

Á tjaldsvæðinu Kirkjubæ II eru sjö lítil smáhýsi til leigu. Smáhýsin eru eru hlý og notaleg. Hvert smáhýsi hefur svefnpláss fyrir fjóra. Þau henta mjög vel fyrir fjölskyldur eða þá sem vilja dvelja á tjaldsvæði en njóta hlýjunnar innandyra. Gistingu í smáhúsunum þarf að bóka í gegnum Airbnb fyrirfram.

Hvert smáhýsi hefur:

Þú kemur með:

10 m2 smáhýsi 1- 4

Smáhýsi 1 til 4 eru öll alveg eins. Svefnpláss fyrir fjóra í tveimur kojum. Það þarf að panta sæng og sængurföt og greiða fyrir sérstaklega, eða þú getur komið með eigin svefnpoka eða sængina þína. Salerni og sturtuaðstaða er í þjónustuhúsinu 10 metra frá smáhýsunum. Eldunaraðstaða með ísskáp er í húsinu. Þar er borðbúnaður fyrir fjóra, pottar, pönnur og áhöld. (Vatn þarf að hita í potti til vaska upp). Húsið er 10 fermetrar að stærð.

14,5 m2 smáhýsi 5 - 7

Smáhýsi 5 til 7 eru öll alveg eins. Svefnpláss fyrir fjóra í tveimur kojum. Það þarf að panta sæng og sængurföt og greiða fyrir sérstaklega, eða þú getur komið með eigin svefnpoka eða sængina þína. Salerni og vaskur (kalt vatn) eru í smáhýsinu. Sturtur og eldunaraðstaða eru í þjónustuhúsinu. Í húsinu er lítill ísskápur. Húsið eru 14, 5 fermetrar að stærð.

Tjaldsvæðið Kirkjubæ II

Tjaldsvæðið Kirkjubæ II hefur fjölmörg tjaldstæði, nóg pláss fyrir alla. Við bjóðum tjöld, húsbíla og hjólhýsi velkomin á tjaldstæðin. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

is_ISIcelandic
Scroll to Top