
Staðsetningin okkar
Heimilisfang: Kirkjubær II, 880 Kirkjubæjarklaustur
Google Kort: Tjaldstæðið Kirkjubær II, smáhýsi og tjaldsvæði
GPS: N 63 47,507 W 018 02,887
Hvað kostar: Verð
Hvað er hægt að gera: Umhverfi
Vegalengdir
- Reykjavík - Kirkjubæjarklaustur 250 km
- Vík - Kirkjubæjarklaustur 70 km
- Fellsfjara / Jökulsárlón - Kirkjubæjarklaustur 120 km
- Höfn - Kirkjubæjarklaustur 200 km
Leiðbeiningar frá Reykjavík
Frá Reykjavík til Kirkjubæjarklausturs er ekið 250 km eftir þjóðvegi 1. Við Kirkjubæjarklaustur er ekið inn á hringtorg og út úr því á þriðju afrein, inn á veg 205 Klausturveg. Akið í 600 m og beygið upp til hægri áður en komið er að Vínbúðinni.
Leiðbeiningar frá Höfn
Frá Höfn til Kirkjubæjarklausturs er ekið 200 km eftir þjóðvegi 1. Við Kirkjubæjarklaustur er ekið inn á hringtorg og út úr því á annarri afrein, inn á veg 205 Klausturveg. Akið í 600 og beygið upp til hægri áður en komið er að Vínbúðinni.
Kirkjubæjarklaustur
Tjaldsvæðið Kirkjubær II er inni í þorpinu Kirkjubæjarklaustri, við hringveginn mitt á milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði. Tjaldsvæði Kirkjubæjar II er kjörinn staður til að skoða: Vatnajökulsþjóðgarð, Skaftafell, Fjaðrárgljúfur, Skaftáreldahraun (Eldhraun) og marga fleiri áhugaverða staði í nágrenninu.
Á Kirkjubæjarklaustri, eða Klaustri eins og það er oftast kallað, má finna þjónustu fyrir ferðamenn. Þeir sem vilja fá sér eitthvað að borða geta farið á veitingastaðina Kjarr, Systrakaffi, Hótel Klaustur eða Skaftárskála. Á Klaustri er sundlaug, verslun, vínbúð, heilsugæslustöð og apótek, bílaverkstæði og bensínstöðvar.
Skaftárstofa, gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs er 2 km frá Kirkjubæjarklaustri við þjóðveg 1. Þar er sýning sem segir frá Skaftáreldum og fleiru merkilegu í nágrenninu. Starfsmenn á Skaftárstofu veita upplýsingar um færð á vegum og leiðbeina fólki sem vill fara um fjallvegi. Og á Skaftárstofu eru almenningssalerni opin allan sólarhringinn. Við biðjum ferðamenn um að nota ekki aðstöðuna á tjaldsvæðinu okkar nema þú sért gestur sem gistir yfir nótt á Tjaldsvæðið eða leigir smáhýsi.
Nánari upplýsingar hvaða þjónustu má finna á Klaustri er á síðunni Umhverfi.
Um okkur
Kirkjubær II tjaldsvæðið og smáhýsin er fjölskyldurekið tjaldsvæði í Kirkjubæjarklaustri.
Tjaldsvæðið Kirkjubær II hóf starfsemi árið 1994. Það voru hjónin Ólöf Benediktsdóttir og Lárus Siggeirsson sem hófu reksturinn og fengu mikinn stuðning frá fjölskyldu sinni.
Sonur þeirra, Benedikt Lárusson, byggði upp með foreldrum sínum og tók svo við rekstrinum árið 2009 og rekur tjaldsvæðið í dag. Upphaflega var þetta eingöngu tjaldsvæði, en síðar var bætt við smáhýsum til að koma til móts við gesti sem vilja njóta þess að vera á tjaldsvæði en óska eftir aðeins betri aðstöðu en að sofa í tjaldi.
Á fyrstu árunum var tjaldsvæðið aðeins opið á sumrin en með fjölgun ferðamanna hefur starfsemin breyst og nú er opið stærstan hluta ársins, aðeins lokað yfir köldustu vetrarmánuðina stýrist opnunartíminn að hluta til af veðurfari.
Fjölskyldan rekur einnig Kjarr veitingahússem er lítill veitingastaður við Systrafoss sem opnaði sumarið 2022. Á matseðlinum er að finna rétti eins og nautakjöt, pastarétti, bleikju, grænmetisrétti og lambakjöt. Í Skaftárhreppi hefur fólk lengi lifað af sauðfjárbúskap og því er lambakjöt mikilvægur réttur á þessu dreifbýla svæði.
Umhverfis Kirkjubæjarklaustur
Kirkjubæjarklaustur er frábær staðsetning til að skoða Vatnajökulsþjóðgarð, Kötlu UNESCO jarðvang, Fjaðrárgljúfur, Skaftáreldahraun, Lómagnúp og margt fleira.